Landinn 26. desember 2019
Í jólaþætti Landans heimsækjum við stórfjölskyldu sem hefur það fyrir hefð að gleðja fátæk börn með þátttöku í verkefninu Jól í skókassa. Við heimsækjum skautadrottningu í Möðrudal…
Landinn fer á ungmennaþing í Rangárþingi ytra og fræðist um það hvað brennur mest á sunnlenskum ungmennum. Við bræðum hraun í Vík í Mýrdal, smíðum húsgögn á Sauðárkróki og hittum norskan herforningja á Keflavíkurflugvelli. Svo lesum við líka ástarsögurnar í Rauðu seríunni sem enda allar vel.

Þáttur um lífið í landinu. Landinn ferðast um og hittir fólk sem fæst við margt áhugavert og skemmtilegt. Ritstjóri er Gísli Einarsson. Aðrir umsjónarmenn: Þórgunnur Oddsdóttir, Edda Sif Pálsdóttir og Halla Ólafsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson, Magnús Atli Magnússon, Gunnlaugur Starri Gylfason og Jóhannes Jónsson.