Landinn
Þáttur um lífið í landinu. Landinn fer um landið og hittir venjulegt fólk sem er að gera áhugaverða og skemmtilega hluti. Umsjónarmenn eru Gísli Einarsson, Þórgunnur Oddssdóttir og Edda Sif Pálsdóttir. Dagskrárgerð: Karl Sigtryggsson.
Landinn fer í loftið á ný sunnudaginn 18. September. Í fyrsta þætti vetrarins verður meðal annars fjallað um það hvernig við lifum lífinu í gegnum snjallsíma og förum kannski um leið á mis við raunveruleikann. Landinn fylgist með goða í Ásatrúarsöfnuðinum að störfum en sá hefur mikið að gera við að gefa saman erlend pör. Landinn fer í Náttúrubarnaskólann á Ströndum, byggir hótel á Snæfellsnesi og hittir hressa rokkara á Egilsstöðum.
Landinn sterkari og bragðmeiri en nokkru sinni fyrr!