Íslenska björgunarvélin á fjarlægum slóðum
Áhöfnin á flugvél Landhelgisgæslunnar tók þátt í að bjarga rúmlega þúsund flóttamönnum á Miðjarðarhafinu í byrjun mars. En á meðan hún sinnir eftirliti á Miðjarðarhafi er eftirlits-…
Eitt versta bílslys sem hefur orðið á Íslandi varð við Núpsvötn milli jóla og nýárs árið 2018. Feðgin sem lifðu af segja sögu sína í þættinum. Alls hafa 119 látist í umferðarslysum undanfarinn áratug, stór hluti erlendir ferðamenn. Í þættinum er varpað fram spurningum um umferðaröryggi á Íslandi nú þegar ferðamenn streyma aftur til landsins.

Kveikur er fréttaskýringaþáttur þar sem áhersla er lögð á rannsóknarblaðamennsku og almennar fréttaskýringar. Ritstjórn og dagskrárgerð: Ingólfur Bjarni Sigfússon, Arnar Þórisson, Arnhildur Hálfdánardóttir, Árni Þór Theodórsson, Ingvar Haukur Guðmundsson, Jóhann Bjarni Kolbeinsson, Karl Newman, María Sigrún Hilmarsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson.