ÁTVR á tímamótum, Airwaves og myndhöggvarar
Ýmsar breytingar gætu verið í farvatninu hjá ÁTVR á borð við heimsendingarþjónustu. Í Kastljósi var rætt við forstjóra ÁTVR um erfiðan rekstur og breytingar. Hún vill að ríkisstjórnin…
Til eru leikskólar á Íslandi þar sem ekki er gert ráð fyrir bókakaupum vegna fjárskorts. Í Kastljósi greinum við frá nýrri skýrslu um bókakost skólabókasafna og almenningssafna og lestrarmenningu þjóðarinnar. Unnar Geir Unnarsson safnstjóri Borgarbókasafnsins í Úlfarsárdal og Margrét Tryggvadóttir ræddu efni skýrslunnar. Þá heimsótti Guðrún Sóley Listasafn Reykjavíkur þar sem boðið er upp á pólska myndlistarveislu.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Margrét Helga Erlingsdóttir og Kristján Kristjánsson. Ritstjóri: Sigríður Halldórsdóttir.