Þorvaldur Davíð Kristjánsson
Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson er einn fyrsti Evrópubúinn til þess að útskrifast úr leiklistardeild hins virta skóla Julliard. Hann hefur nú þegar skrifað undir samning við…
Ragnhildur Steinunn kynnir okkur fyrir ljósmyndaranum Sögu Sigurðardóttur sem þrátt fyrir ungan aldur hefur tekið tískuljósmyndir fyrir stæstu blöð heims. Saga Sigurðardóttir sem ólst upp á Þingvöllum segir Íslenskt landslag hafa kennt sér að taka myndir þegar hún var aðeins átta ára. Hún lauk nýverið BS prófi í tískuljósmyndun í London og segist staðráðin í að ná sem lengst.

Þættir frá 2011 um ungt og áhugavert fólk sem skarar fram úr á hinum ýmsu sviðum. Skyggnst er inn í líf einnar persónu í hverjum þætti og henni fylgt eftir í sínu daglega lífi. Umsjón: Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Stjórn upptöku og myndvinnsla: Eiríkur I. Böðvarsson.