Skjaldborg 2024
Fjallað er um Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, sem fram fór á Patreksfirði 17.–19. maí 2024. Farið er yfir helstu hápunkta hátíðarinnar og rætt er við höfunda heimildarmyndanna.
Í tilefni af að Sigurður Sverrir Pálsson kvikmyndatökustjóri hlaut heiðursverðlaun Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar lýsa sjö leikstjórar og nánir samstarfsmenn Sigurðar Sverris eiginleikum hans og samstarfinu við hann í gegnum árin. Sýnd eru fjölmörg brot úr þeim kvikmyndum þar sem Sigurður Sverrir annaðist myndatöku. Einnig er rætt við Sigurð Sverri um kjarnann í starfi kvikmyndatökumannsins.

Heimildarþættir þar sem fjallað er um ýmislegt markvert úr heimi íslenskrar kvikmyndagerðar. Dagskrárgerð: Ásgrímur Sverrisson.