Íslenska kvikmyndasumarið
Verk íslenskra leikstjóra vekja nú meiri athygli á alþjóðlegum vettvangi en nokkru sinni fyrr. Hópur erlendra kvikmyndasérfræðinga ræðir um árangur íslenskra kvikmynda á alþjóðlegum…
Á síðari hluta tíunda áratugarins eru Friðrik Þór Friðriksson og Íslenska kvikmyndasamsteypan alltumlykjandi. Á þessum tíma gerir Friðrik tvær myndir, Djöflaeyjuna og Engla alheimsins. Aðrar myndir frá þessum tíma eru til dæmis Ungfrúin góða og húsið, Íslenski draumurinn, 101 Reykjavík og Myrkrahöfðinginn.

Þáttaröð í tíu hlutum um íslenskar kvikmyndir allt frá fyrri hluta 20. aldar til samtímans. Í hverjum þætti er ákveðið tímabil tekið fyrir, fjallað um kvikmyndir þess tímabils og sýndir valdir hlutar úr þeim. Rætt er við á annað hundrað kvikmyndagerðarmenn, leikara og kvikmyndasérfræðinga um verkin og margvíslega fleti íslenskrar kvikmyndagerðar. Leikstjóri: Ásgrímur Sverrisson.