1. Gömul úlpa
Hjónin Felix og Klara eru eldri borgarar sem búa í rótgrónu hverfi. Þau eiga þrjú börn og þó nokkur barnabörn sem Felix þekkir illa í sundur. Þegar heilsu Klöru hrakar tekur fjölskyldan…
Heimilið er í óreiðu og Klara neitar að koma heim í óbreytt ástand. Felix þrjóskast við en grípur að lokum til aðgerða til að koma til móts við Klöru með ófyrirséðum afleiðingum.

Íslensk leikin þáttaröð um fyrrverandi tollvörðinn Felix sem flyst ásamt eiginkonu sinni, Klöru, í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík. Á meðan Klara nýtur frelsisins rankar Felix við sér í innihaldslausum hversdagsleika eftir langa starfsævi og leitar tilgangs. Leikstjóri: Ragnar Bragason. Aðalhlutverk: Jón Gnarr og Edda Björgvinsdóttir.