Þáttur 1 af 8
Katrín Gunnarsdóttir er metnaðarfull rannsóknarlögreglukona með augastað á stöðu yfirmanns rannsóknardeildarinnar. Þegar eldri karlmaður finnst myrtur við Reykjavíkurhöfn undir óvenjulegum…
Óvæntir atburðir í rannsókn málsins reynast bæði Kötu og Arnari þungbærir. Hún á erfitt með að sleppa takinu og draugar úr fortíð Arnars, sem hann hefur lengi reynt að halda í skefjum, láta á sér kræla á ný.

Íslensk spennuþáttaröð frá 2019 um rannsóknarlögreglukonuna Katrínu sem rannsakar óvenjulegt morð í Reykjavík. Það reynist upphafið að óhugnanlegu og flóknu sakamáli og lögreglan fær virtan lögreglumann með dularfulla fortíð, Arnar, til að snúa heim eftir áratuga fjarveru utanlands og aðstoða við rannsókn málsins. Leikstjórn: Þórður Pálsson, Davíð Óskar Ólafsson og Þóra Hilmarsdóttir. Aðalhlutverk: Nína Dögg Filippusdóttir og Björn Thors. Framleiðsla: Mystery og Truenorth. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.