Framtíð menntunar
Er skólakerfið okkar í takt við samtímann? Við skoðum framtíðarsýn í skólamálum og heimsækjum Vestmannaeyjar þar sem nýju og spennandi þróunarverkefni var ýtt úr vör haustið 2021.
Hvar stendur Ísland þegar kemur að lestrarfærni barna? Við skoðum lestraraðferðir, mikilvægi lesturs og hvaða afleiðingar það getur haft fyrir börn að ná ekki grunnfærni í lestri.

Börnin okkar er sex þátta röð þar sem rýnt er í íslenska skólakerfið. Sérfræðingar, skólafólk, foreldrar og börn varpa ljósi á kosti þess og galla og mögulegar lausnir. Hugmynd og handrit: Gunnþórunn Jónsdóttir og Hermundur Sigmundsson. Dagskrárgerð: Eiríkur Ingi Böðvarsson og Gunnþórunn Jónsdóttir.