
Alla leið 2020
Felix Bergsson og gestir hans fjalla um lögin sem valin voru til þátttöku Eurovision í ár og Björg Magnúsdóttir fær gott fólk til að rifja upp skemmtilegar Eurovision-minningar og spjalla um keppnina fyrr og nú. Álitsgjafarnir verða á sínum stað, kveða upp dóm sinn um lögin og spá í hver hefði borið sigur úr býtum þetta árið. Einkunnir álitsgjafanna og kosning áhorfenda á vefnum ráða því svo hvaða 15 lög fá að keppa í sérstöku Eurovision-partýi sem verður slegið upp í beinni útsendingu fimmtudaginn 14. maí. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.