Yfirburðartraust fréttastofu RÚV

Yfirburðartraust fréttastofu RÚV

Könnun Maskínu á trausti fréttastofa var gerð með nýjum og ítarlegri hætti í desember 2023.  Niðurstöður könnunarinnar leiddu í ljós yfirgnæfandi meirihluti landsmanna treysta fréttum RÚV. 73,5% aðspurðra segjast bera mikið traust til fréttastofu RÚV, um 14% segjast hvorki treysta né vantreysta fréttastofunni og 12% segjast bera lítið traust til hennar. Aðrir miðlar standa RÚV langt að baki. Jafnframt sögðust meira en 85% landsmanna treysta því að fréttastofa RÚV greini satt og rétt frá. Traust landsmanna á fréttaflutningi er mælt ár hvert í samræmi við þjónustusamning RÚV og menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Þessar kannanir MMR/Maskínu hafa verið framkvæmdar frá 2017 og hefur traust fréttastofu aukist nokkuð frá þeim tíma. Mest mældist traust fréttastofu 75%, í nóvember 2020, en minnst 64%, í nóvember 2018. Könnunin fór fram 6. til 20. desember 2023 og náði til Íslendinga, 18 ára og eldri. Hún var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, og voru svarendur 994 talsins. 

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.