
23 Aug Útvarpsleikritið Ástarvitinn tilnefnt til verðlauna
Útvarpsleikritið Ástarvitinn eftir Guðmund Felixson og Ylfu Ösp Áskelsdóttur var tilnefnt til ljósvakaverðlaunanna Prix Europa. Verðlaunahátíðin fór fram í Berlín í Þýskalandi 6. – 11. október. Ástarvitinn varr tilnefndur í flokki útvarpsleikrita. Leikstjóri var Eva Halldóra Guðmundsdóttir og Gísli Kjaran Kristjánsson sá um hljóðvinnslu. Katrín Halldóra Sigurðardóttir fór með aðalhlutverkið í Ástarvitanum og lék þerapistann Jónínu Guðmann sem fékk til sín góða gesti í hlaðvarpið Ástarvitann sem hún aðstoðaði í ólgusjó ástarlífsins.
Sorry, the comment form is closed at this time.