STEFNA RÚV TIL 2026

HLUTVERK

Hlutverk RÚV er að upplýsa og fræða, skerpa skilning og þátttöku í samfélaginu, auka ánægju og hreyfa við fólki á uppbyggilegan hátt.

FRAMTÍÐARSÝN

RÚV vill endurspegla litríkt samfélag.

GILDI

Gildi RÚV einkenna vinnubrögð, viðhorf og framkomu starfsfólks.

STEFNUÁHERSLUR

Fimm stefnuáherslur liggja til grundvallar stærri og smærri aðgerðum RÚV til ársloka 2026.

STEFNUÁHERSLUR

Áherslurnar sem settar eru fram í stefnunni taka mið af lykilbreytingum í ytra umhverfi, viðhorfi og hegðun neytenda, þróun fjölmiðlamarkaðar og stöðu almannaþjónustumiðla. Stefnuskjöl systurstöðva annars staðar á Norðurlöndunum og Bretlandseyjum voru rýnd auk þess sem vinnan við stefnumótun RÚV er byggð á umfangsmiklum rannsóknum frá Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU.

 

Önnur lykilatriði í ytra umhverfi eru samfélagsleg ábyrgð, tengsl við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, auknar áherslur á sviði jafnréttismála og umhverfis- og loftslagsmála, áherslur á fjölbreytileika, jafnræði, aðgengi og sýnileika fjölbreyttra hópa. Horft var til aukinnar norrænnar samvinnu við framleiðslu á efni auk þess sem stefnumótun og áherslur EBU á mörgum sviðum höfðu áhrif á að horft er á aukið virði almannaþjónustumiðlanna. Horft var til nauðsynjar þess að auka meðvitund um falsfréttir og leiðir til að sporna gegn þeim og upplýsingaóreiðu almennt, meðal annars með áherslu á miðla- og upplýsingalæsi.

 

Staða RÚV, hlutverk og áskoranir voru bornar saman við stöðu annarra almannaþjónustumiðla og þær leiðir sem þeir hafa valið og samhljómurinn er mikill. RÚV sinnir mikilvægri þjónustu í íslensku samfélagi sem er að miklu leyti sambærileg við þjónustu erlendra almannaþjónustumiðla.

STAFRÆNT RÚV

Stafræn tækni þróast hratt. RÚV tekur virkan þátt í stafrænum umbreytingum í þágu notenda og vinnur frumkvöðlastarf í framleiðslu og dreifingu.

FRÉTTIR OG ÞJÓÐFÉLAGSRÝNI

RÚV starfar í þágu fólksins í landinu og gegnir mikilvægu öryggis- og lýðræðis­hlutverki. Aðaláherslan er á vandaðan og hlutlægan fréttaflutning og kappkostað er að standa undir trausti almennings.

MENNING OG MIÐLUN

RÚV tekur virkan þátt í íslensku menningar­lífi með því að skapa, miðla og fjalla um öll svið menningar og lista. RÚV sýnir frumkvæði og djörfung í sköpun, miðlun og umfjöllun.

FJÖLBREYTILEIKI, JAFNRÆÐI OG ÞÁTTTAKA

RÚV ber að endurspegla fjölbreytileika sam­félagsins í dagskrá og allri starfsemi. Kynjajafnrétti er hornsteinninn í ytra og innra starfi og gætt er að jafnræði fjölbreyttra hópa og einstaklinga. Aðgengi allra að þjónustu RÚV skal vera tryggt og áhersla lögð á þjónustu við ólíka einstaklinga.

SJÁLFBÆRNI OG SAMFÉLAGSÁBYRGÐ

RÚV gegnir mikilvægu hlutverki við að byggja upp sjálfbært samfélag í samræmi við heims­markmið Sameinuðu þjóðanna. Það felur í sér skuld­bindingu um að styrkja hringrásarhagkerfið, skapa virði og efla þá þætti í stefnumótun, aðgerðum og ákvarðanatöku er snúa að umhverfis- og loftslagsmálum, félagslegri sjálfbærni og ábyrgum stjórnunarháttum.

Stjórn RÚV ohf.

janúar–apríl

Aðalmenn

  • Silja Dögg Gunnarsdóttir, formaður
  • Rósa Kristinsdóttir
  • Marta Guðrún Jóhannesdóttir
  • Ingvar Smári Birgisson
  • Aron Ólafsson
  • Mörður Áslaugarson
  • Margrét Tryggvadóttir
  • Þráinn Óskarsson
  • Diljá Ámundadóttir Zoëga
  • Anna María Benediktsdóttir
    (fulltrúi starfsmanna)

Varamenn

  • Jónas Skúlason
  • Magnús Benediktsson
  • Kristján Ketill Stefánsson
  • Birta Karen Tryggvadóttir
  • Sandra Rán Ásgrímsdóttir
  • Kristín Amalía Atladóttir
  • Viðar Eggertsson
  • Natalie Guðríður Gunnarsdóttir
  • Ingvar Þóroddsson
  • Valgeir Vilhjálmsson (fulltrúi starfsmanna)

apríl-desember 

Aðalmenn

  • Stefán Jón Hafstein, formaður
  • Diljá Ámundadóttir Zoëga
  • Heimir Már Pétursson
  • Kristín Sóley Björnsdóttir
  • Auður Finnbogadóttir
  • Ingvar Smári Birgisson
  • Eiríkur S. Svavarsson
  • Unnur Brá Konráðsdóttir
  • Silja Dögg Gunnarsdóttir
  • Anna María Benediktsdóttir
    (fulltrúi starfsmanna)

Varamenn

  • Viðar Eggertsson
  • Natan Kolbeinsson
  • Katrín Viktoria Leiva
  • Albertína Friðbjörg Elíasdóttir
  • Kamma Thordarson
  • Birta Karen Tryggvadóttir
  • Sveinn Óskar Sigurðsson
  • Magnús Benediktsson
  • Jónas Skúlason
  • Valgeir Vilhjálmsson (fulltrúi starfsmanna)

Skipurit

Stjórnskipulag RÚV er í stöðugri þróun. Breytingar eru gerðar til að styrkja dagskrárþróun, framleiðslu og miðlun til stafrænnar framtíðar. Nýtt skipurit var kynnt 2025.

Innri áherslur

Velferð og vistvænar samgöngur

Markvisst er unnið að því að setja heilsu og velferð starfsfólks í forgrunn. Velferðaráherslur eru í fjórum meginþáttum: hreyfing og næring, vellíðan, jákvæð tengsl og aukin þekking. Á árinu var starfsfólki boðið upp á ýmsa velferðartengda ráðgjöf s.s. sálfræði-, næringar- og svefnráðgjöf og ráðgjöf til að takast á við og fyrirbyggja langvarandi streitu og álagseinkenni.

„Start-vika“ að hausti var helguð samstarfi og samvinnu. Boðið var upp á fræðsluerindi tengd samskiptum og samvinnu auk þess sem áhersla var lögð á að deildir kynntu starfsemi sína hver fyrir annarri. Þá var uppbrot á hefðbundum matseðli í mötuneytinu þá viku, þar sem nokkrar deildir völdu rétti dagsins.  Áfram er stutt við starfsþróun, m.a. með tækifærum í gegnum EBU-samstarf.

Starfsfólk RÚV á kost á að fá íþróttastyrk og það er hvatt til vistvænna samgangna með tilboði um samgöngusamning. Starfsfólki stendur til boða afnot af rafmagnshjóli endurgjaldslaust nokkra daga í einu til að hvetja til vistvænni samgangna til og frá vinnu.

Hugað var að hreyfingartengdum heilsuviðburðum með þátttöku í Lífshlaupinu og Hjólað í vinnuna. Þátttakan eykst ár frá ári enda er starfsfólk hvatt til að vera með og eru veitt hvatningarverðlaun.

RÚVaralífið

Félagslífið var fjörugt á árinu. Starfsmannasamtök RÚV stóðu fyrir glæsilegri árshátíð í Gamla bíó á fyrri hluta ársins auk þess sem haldnir voru ýmsir viðburðir svo sem spurningakeppni, sumar- og jólagleði þar sem RÚV bandið kom, sá og sigraði.

Áralöng hefð er fyrir jólaballi í stúdíói A, sem var vel sótt fjölskylduskemmtun. Þorri og Þura og hressir jólasveinar stýrðu dansi kring um jólatréð. Fjölskyldudagur RÚVara hefur fest sig í sessi í upphafi sumars. Þá gefst starfsfólki kostur að bjóða fjölskyldum sínum í Efstaleiti í grill og gaman. Stúdíóin eru opnuð fyrir gestum og boðið upp á blöðrulist og söngatriði. Þá stóð RÚV fyrir vel heppnaðri fjölskyldustund í fimleikasal í samstarfi við starfsmannafélagið.

Þróun þekkingar

Allt starfsfólk styður við mikilvægt hlutverk RÚV sem almannaþjónustumiðils sem rýnir samfélagið, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar.

Lögð er áhersla á að byggja upp hæfni og styrkja starfsfólk í fjölbreyttum hlutverkum innan RÚV. Starfsmannasamtöl eru notuð fyrir endurgjöf og sem vettvangur til að ræða starfsþróun. Stjórnendur hafa fengið reglulega þjálfun vegna starfsmannasamtala og endurgjafar.

Fjölmargir fræðslufundir voru haldnir á árinu. Allt árið var starfsfólki af erlendum uppruna boðið upp á einkakennslu í íslensku á vinnutíma sem einn af málfarsráðgjöfum á RÚV hefur á hendi.

Lagt var kapp á að bjóða upp á sem flest fræðsluerindi á fjarfundum. Lögð var áhersla á að vinna úr ábendingum starfsfólks um fræðslu til efla fagþekkingu, t.d. á einstökum kerfum og forritum.

Haldið var áfram með þróun rafræns fræðslukerfis þar sem starfsfólki gefst kostur á að sækja fræðsluefni þegar því hentar best. Í boði eru fjölmörg stutt og hnitmiðuð námskeið. Kerfið er mikilvæg upplýsingaveita til starfsfólks um ýmis mannauðstengd mál og gegnir þýðingarmiklu hlutverki í upplýsingum til nýrra starfsmanna.

Varðveisla og miðlun íslenskrar tungu og menningar

Safn RÚV

Safn Ríkisútvarpsins varðveitir sjónvarps- og útvarpsefni frá upphafi útsendinga árið 1930. Í gagnagrunni RÚV-safnsins eru ríflega ein milljón færslna. Safnið er opið almenningi í Efstaleiti og er safnaefni eftirsótt til fjölbreyttrar dagskrárgerðar, bæði innanlands og af hálfu sjálfstæðra framleiðenda víða um heim.

Á árinu var lögð sérstök áhersla á að styrkja innviði og verklag safnsins. Skráning nýs útvarps- og sjónvarpsefnis í langtímasafn var að stórum hluta sjálfvirknivædd, sem dregur verulega úr handavinnu við frágang efnis. Dagskrá Ríkisútvarpsins frá upphafi útsendinga var skönnuð og gerð aðgengileg og leitarbær á timarit.is. Þá var framkvæmd úttekt á núverandi gagnagrunni og hafinn undirbúningur útboðs fyrir nýjan gagnagrunn sem þjónar betur kröfum samtímans.

Unnið var markvisst að varðveislu og aðgengi að efni. Mörg þúsund hljóðskrár í safni RÚV voru talgreindar í samstarfi við máltæknifyrirtækið Tiro. Talgreiningin nýtist við skráningu efnis með mun meiri nákvæmni en áður var mögulegt.

Jafnframt lauk skráningu og greiningu ómerktra segulbanda úr geymslum safnsins, þar á meðal mikils magns tónlistarupptaka á TD-böndum. Skráning lakkplötusafns Ríkisútvarpsins var færð í gagnagrunn og hljóðið gert aðgengilegt. Allt myndhráefni tengt leiðtogafundinum í Höfða árið 1986 var yfirfært á stafrænt form.

Mikið af eldra sjónvarpsefni var skráð og gert leitarbært og sérstakt átak var gert í skráningu nafna einstaklinga í gagnagrunni safnsins, sem telur rúmlega 400 þúsund nöfn. Nöfn voru tengd við kennitölur og tvítekningum eytt.

Auk þess fór starfsfólk safnsins í kynnis- og samstarfsheimsókn til SR og SVT í Stokkhólmi til að afla reynslu og styrkja alþjóðlegt samstarf.

Líkt og undanfarin ár voru innslög með völdum brotum úr safninu útvarpað hálfsmánaðarlega í Samfélaginu á Rás 1 og efni úr safni RÚV birtist reglulega á TikTok á vegum fréttastofu.

Málfar

RÚV hefur ríkar skyldur við íslenskt mál og áhersla er lögð á vandað mál í öllum miðlum. Málfarsráðgjafar lesa yfir, veita ráðgjöf og stuðla að bættri íslenskufærni starfsfólks, koma með ábendingar og halda fundi um málfar. Umfang yfirlestrar eykst ár frá ári. Málfarsráðunautur og málfarsráðgjafar sinna upplýsingagjöf og fræðslu um íslensku í miðlum RÚV meðal annars í þættinum Orð af orði sem hefur verið vikulega á Rás 1 frá 2013. Þeir halda líka utan um valið á orði ársins með dyggri aðstoð samtarfsfólks í öllum deildum. Gjaldskylda er orð ársins 2025.

RÚV tekur þátt í máltækniáætlun stjórnvalda og leggur lið við þróun máltækni. Þá á RÚV fulltrúa í Íslenskri málnefnd og Málræktarsjóði.

Aðgengi

Aðgengi að miðlum RÚV er tryggt með ýmsum hætti. Hægt er að nálgast íslenskan texta í sjónvarpi og spilara með nær öllu innlendu efni sem sent er út. Texti er sendur út beint með fréttum og íþróttafréttum í sjónvarpi og menningarviðburðum á borð við Klassíkina okkar. Sjálfvirkur texti með beinum útsendingum hefur verið í þróun undanfarin ár svo hægt sé að bjóða upp á texta sem víðast. Sú þróun tekur tíma og sjálfvirka textunin eykst jafnt og þétt eftir því sem tækninni vindur fram. Síðustu ár hafa allir aukafréttatímar í sjónvarpi verið með sjálfvirkum texta, ásamt kosningaumfjöllun í beinni útsendingu og Silfrinu. Á árinu var aukið í sjálfvirka textun og nú má nálgast texta með veðurfréttum, Kastljósi og Stofunni. Stefnt að því að hafa sjálfvirkan texta aðgengilegan með fleiri reglubundnum útsendingum á næstunni.

RÚV.is er hannaður með það fyrir augum að aðgengi sé gott fyrir blint og sjónskert, hreyfihamlað, heyrnarlaust og heyrnarskert fólk og þau sem eru með þroskahömlun. Einnig er tekið tillit til þátta eins og lesblindu og að kalla ekki fram flogaköst. RÚV lætur reglulega gera úttekt á aðgengi á vef sínum og bætir það ef úttekt sýnir að þess sé þörf.

Fréttir á auðskildu máli eru birtar á vefnum til þess að fólk með þroskahömlun hafi aukið aðgengi að fréttum sem eykur möguleika þess á virkri þátttöku í samfélaginu. Fréttir á auðskildu máli nýtast jafnframt fleirum.  Gervigreind er notuð við ritun frétta á auðskildu máli en mannshöndin fer yfir fréttirnar og gengur frá þeim til birtingar. Áfram verður haldið að þjálfa gervigreind á gerð frétta á auðskildu máli.

Kvöldfréttir og Krakkafréttir og aukafréttatímar eru túlkaðir á táknmál. Í samstarfi við Félag heyrnarlausra voru lögin í úrslitaþætti Söngvakeppninnar 2025 flutt á táknmáli á RÚV 2 af döff flytjendum. Auk þess var allt tal í þættinum túlkað á táknmál. Úrslitaþáttur Eurovision var enn fremur með táknmálstúlkun á RÚV 2.

Þjónusta á ensku og pólsku

RÚV veitir íbúum sem hafa ekki íslensku að móðurmáli þjónustu á ensku og pólsku. Fréttastofa miðlar fréttum á ensku og pólsku og heldur úti hlaðvarpsþáttunum The Week in Iceland og Wyspa. Vinsælar íslenskar þáttaraðir eru aðgengilegar með enskum texta á RÚV 2 og í spilara. Talsettar fjölskyldumyndir sem sýndar eru á RÚV eru oft sýndar á sama tíma á frummálinu með íslenskum texta.

Mannauður

269

Meðalfjöldi stöðugilda

45ár

Meðalaldur starfsfólks

10ár

Meðalstarfsaldur starfsfólks

48%

Hlutfall kvenna í hópi starfsmanna

Starfsfólk og jafnrétti

FJÖLBREYTTUR STARFSHÓPUR

Hjá RÚV starfar kraftmikill og fjölbreyttur hópur fólks sem vinnur verk sín af lífi og sál og er stolt af starfi sínu. Það er stefna RÚV að skapa sveigjanlegt starfsumhverfi sem laðar að hæfasta starfsfólkið á hverju sviði. Velferð, vellíðan og öryggi starfsfólks er í forgrunni á vinnustaðnum. Á árinu 2025 hlaut RÚV staðfestingu á jafnlaunavottun, en RÚV hefur rekið vottað jafnlaunakerfi frá árinu 2019.

 

FÓLKIÐ

Árið 2025 störfuðu 293 starfsmenn að meðaltali hjá RÚV. Starfsmannavelta var 8,5% (án þeirra sem hættu vegna eftirlauna).
Lögð er áhersla á að taka vel á móti nýju starfsfólki og könnuð er líðan og aðlögun þess í nýliðasamtölum. Starfað er eftir stefnu um að auka fjölbreytileika í starfshópnum og jafna kynja- og aldurshlutföll. Í hópi nýliða blandast reynt eldra fólk við yngra starfsfólk. Aldursdreifing starfsfólks er nokkuð jöfn og meðalaldurinn er um 45 ár.

MÆLINGAR OG UMBÆTUR

Mannauðsteymi starfar í samræmi við stefnu RÚV um að byggja upp og viðhalda góðu starfsumhverfi og vinnustaðarmenningu í því öfluga þekkingar- og nýsköpunarsamfélagi sem RÚV er. Það er stefna teymisins að starfa í þágu velferðar og árangurs á vinnustaðnum og leggja áherslu á góð samskipti, samstarf og gæði. Samtöl við starfsfólk, s.s. nýliða- og starfslokasamtöl, eru nýtt til umbóta allt árið. Jafnan er mikill áhugi á störfum hjá RÚV. Fleiri störf voru auglýst árið 2025 en árið á undan. Um þúsund  umsóknir bárust um auglýst störf.

 

Viðhorf starfsfólks til margra þátta í vinnuumhverfinu voru greind í viðhorfskönnun í lok árs. Töluverður árangur hefur náðst milli ára á síðustu árum í ýmsum mikilvægum þáttum, svo sem í viðhorfi starfsfólks til stjórnunar og starfsþróunar. Starfsánægja og vellíðan í starfi mælist áfram sem mikill styrkleiki í starfseminni, einnig stolt af starfinu sem er einn af mikilvægustu styrkleikaþáttunum. Sem fyrr verður unnið að úrbótaverkefnum í framhaldi af niðurstöðunum kannana. Helstu umbótaþættir snúa að álagstengdum þáttum, samstarfi á milli sviða og eininga innan RÚV og umbótum í starfsaðstöðu.

Viðhorf og heilsa

96%

Heilsuvísitala starfsfólks

4,0

Frumkvæði, umboð og verkefni

4,3

Starfsánægja

4,2

Skuldbinding og hollusta

*Einkunn á bilinu 0-5 í viðhorfskönnun starfsmanna