Tvö íslensk útvarpsverk tilnefnd til Prix Europa-verðlauna

Tvö íslensk útvarpsverk tilnefnd til Prix Europa-verðlauna

Útvarpsverkin Hvar er Jón? og Þau sjá okkur ekki í myrkrinu voru tilnefnd til hinna virtu Prix Europa-verðlauna sem eru árlega veitt fyrir framúrskarandi sjónvarps- og útvarpsefni frá Evrópu.

Þáttaröðin Hvar er Jón er skrifuð og framleidd af Önnu Marsibil Clausen og Liam O’Brien um hvarf Jóns Þrastar Jónssonar, rúmlega fertugs fjölskyldumanns sem ekkert hefur spurst til síðan hann yfirgaf hótel í Dyflinni árið 2019.

Kristín Eiríksdóttir rithöfundur settist niður með Ahmed Almamlouk og Fadiu Redwan sem flúðu til Íslands frá Gaza og Khalid Omer túlkur gerði þeim kleift að tala saman. Úr varð útvarpsleikverkið Þau sjá okkur ekki í myrkrinu.

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.