

Broddi og Oddlaug eru litlir broddgeltir, sem elska að fara út og kanna heiminn. Þau eru yfirleitt bestu vinir og skemmta sér saman í hinum ýmsu leikjum.

Bubb byggir og félagar leysa vandamál og koma hlutum í verk með bros á vör. Getum við gert þetta? – Hvort við getum.

Önnur þáttaröð um Lalla, sem færir ykkur allan heiminn þegar hann grípur litina sína. Hann er svo flinkur að teikna hann Lalli!

Friðþjófur forvitni er forvitinn og yndislegur api sem getur oft á tíðum verið full ævintýragjarn. Fylgjumst með ævintýrum hans og mannsins með gula hattinn eiganda hans.
Teiknimyndaþættir fyrir börn byggðir á samnefndri breskri barnabók frá árinu 1994 eftir Sam McBratney, með myndskreytingum eftir Anitu Jeram. Bókin hefur verið gefin út á yfir 53 tungumálum og selst í yfir 28 milljónum eintaka.

Danni tígur er þáttaröð sem kennir börnum að túlka tilfinningar sínar. Hvenær upplifa þau sorg, reiði og hvenær eru þau þakklát. Danni notar tónlist og syngur um það sem hann upplifir sem leyfir börnum að tileinka sér það frekar. Þátturinn er ætlaður leikskólabörnum og kennir tilfinningagreind og sjálfsvirðingu sem og virðingu fyrir öðrum.

Kári, Villi og Hanna lenda í alls kyns ævintýrum og þurfa að standa saman til að takast á við illmennið Ívar.

Þættir um óteljandi ævintýri Strumpanna og Kjartans galdrakarls sem fara hér á kostum í Strumpabæ.

Þriðja þáttaröðin um hina vinsælu Blæju og Hælbein fjölskylduna. Daglegt líf fjölskyldunnar gengur sinn vanagang, en hins vegar er enginn dagur eins þegar Blæja og Bára eiga í hlut.

Stærðfræðiofurhetjurnar Millý, Geó og Bói hjálpa krökkum að læra tölur, form og mynstur.

Skemmtilegir þættir um hina ástsælu Múmínálfa Tove Jansson og ævintýri þeirra.

Matthías Már Magnússon tekur á móti tónlistarfólki sem veitir innsýn í líf sitt og flytur nokkur af vinsælustu lögunum sínum í bland við nýjar ábreiður. Í þáttunum fá áhorfendur að sjá nýjar hliðar á mörgu af áhugaverðasta tónlistarfólki landsins. Þættir frá 2021.
Heimildarþættir þar sem Halla Ólafsdóttir skoðar hvers vegna fólk flytur landshorna og heimshorna á milli - og hvað það er sem fólk kallar „heima“.
Svitlana og Tymofii Pylypenko eru tvö af tæplega fimm þúsund Úkraínubúum sem hafa flúið stríðið til Íslands. Þau vildu komast sem lengst frá átökunum. Við hittum þau þegar þau eru nýkomin til landsins og svo aftur ári síðar. Við kynnumst Denis Grbic sem flúði stríðið í Júgóslavíu sem barn og við hittum Najlaa Attaallah frá Gaza sem þurfti að vera fjarri börnum sínum í ellefu mánuði til að tryggja þeim öruggt líf. Við sláumst einnig í för með hópi fólks frá Venesúela sem vill leggja sitt af mörkum til samfélagsins á meðan þau bíða afgreiðslu umsókna sinna um vernd hér á landi.
Heimildarmynd um hljómsveitina Purrk Pillnikk sem kom eins og vígahnöttur inn í íslenskan tónlistarheim í upphafi níunda áratugarins. Á átján mánaða ferli lék Pukkur Pillnikk ríflega sextíu lög á tæplega sextíu tónleikum. Nær öll lögin voru gefin út að undanskilinni fimm laga syrpu sem bar heitið Orð fyrir dauða og hljómaði aðeins einu sinni – á síðustu tónleikum hljómsveitarinnar. Þegar sveitin varð fertug kom hún saman á ný og tók upp verkið. Mynd eftir Kolbein Hring Bambus Einarsson og Tómas Sturluson.

Dönsk heimildarmynd um það sem tekur við þegar kær ástvinur deyr. Rætt er við fólk um það hvernig það tekst við á missi og sorg. Þegar lífið er of erfitt styðjumst við mannfólk við helgisiði og venjur. Hjá mörgum verða til siðir til að halda minningu þess látna á lofti.
Fróðlegur og skemmtilegur þáttur um fólk sem á rætur um allan heim, en hefur af ólíkum ástæðum sest að á Íslandi. Næstum því einn af hverjum tíu íbúum Íslands er af erlendum uppruna. Sumir komu hingað af því að þá langaði til þess, aðrir áttu fáa aðra kosti. Einhverjir ætluðu bara rétt aðeins að staldra við, en ílentust óvart á lítilli eyju í norðri. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Ragnheiður Thorsteinsson.
Í Rótum er fjallað um fólk sem á rætur um allan heim en hefur sest að á Íslandi. Við spyrjum fjöldann allan af fólki um ástæður þess að það settist hér að og förum yfir hraða þróun íslensks samfélags í átt að fjölmenningarsamfélagi. Við tölum við Pólverja um hvernig það er að vera pólskur á Íslandi. Við heimsækjum filippseyska ömmu með fullt hús af börnum og tölum við unga afganska flóttakonu um hvernig það var að flytja frá Íran til Íslands.

Sænskir þættir um fiskveiðar. Þáttastjórnendurnir Emilie Björkman og Martin Falklind ferðast um Svíþjóð, hitta fiskveiðiáhugamenn, stunda veiðar og gefa góð ráð.

Heimildarþáttur um störf heimilislækna. Vinnudagur þeirra hefur breyst umtalsvert á síðustu áratugum og í þættinum segja sex heimilislæknar frá viðfangsefnum sínum á heilsugæslustöðvum. Heimilislæknar í dag eru í síauknu samstarfi við ýmsar sérhæfðar starfsstéttir og sinna þjónustu við æ fjöbreyttari hóp skjólstæðinga. Dagskrárgerð: Páll Kristinn Pálsson og Aðalgeir Gestur Vignisson.

Sænskir þættir frá 2021. Fjölskyldur prófa alls kyns afþreyingu í von um að finna áhugamál sem öll fjölskyldan getur stundað saman.

Loft hefur tekið jarðormana í sátt og kynnist nú ævintýralegri tilvist þeirra í gegnum sjónaukann sinn og endurspeglar sjálft sig í þeim.
Er regnboginn áþreifanlegur? Er hægt að fara undir hann? Hvernig verður hann til?... Loft svarar öllum þessum spurningum þegar það fer með krakkana í ferðalag inn í regnbogann.

Hvað ætli gerist þegar hin og þessi skordýr bíta fólk og stinga? Sebastian Klein ferðast um sveitir Danmerkur og lætur bíta sig, brenna og stinga til að komast að því.

Dýralífsþættir sem gefa okkur dásamlega innsýn inn í undraveröld villtu dýranna.

Stutt umfjöllun Sumarlandans sem var á flakki sumarið 2021 og hitti landann fyrir í sínu náttúrulega umhverfi, uppi á fjöllum, úti í garði, inni í skógi og allt um kring. Umsjónarmenn: Gísli Einarsson, Guðríður Helgadóttir, Hafsteinn Vilhelmsson, Helga Margrét Höskuldsdóttir, Þórhildur Þorkelsdóttir og fleiri.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Heimildarþáttaröð um íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu, upphafsár þess og sögu, sigra og ósigra. Liðið er eitt þeirra fremstu í heiminum og stjörnur þess með þekktustu íþróttamönnum þjóðarinnar. En leið kvennalandsliðsins á þann stað sem það er á í dag var allt annað en greið.
Eftir stórleik í Rotterdam og sæti í 8-liða úrslitum fer velgengnin dvínandi. HEn hugrekki leikmanna utan vallar, ný viðhorf og met í áhorfstölum markar upphaf nýrrar nálgunar á íslenskan kvennafótbolta.

Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem Sveppi, og Gunnar Karl Gíslason, Michelin-kokkur, ferðast um landið og kynnast matarmenningu þjóðarinnar. Í þriðju þáttaröð Veislunnar leiða þeir félagar áhorfendur í ævintýraferðir um hinar ýmsu eyjar.
Sverrir Þór og Gunnar Karl halda veislu í hinni rómuðu Flatey á Breiðafirði með dyggri aðstoð heimamanna og annarra sem þar dvelja. Hljómsveitin GÓSS er þar á meðal og aldrei að vita nema hún taki lagið í kvöldsólinni.
Fjórða og síðasta þáttaröðin um ítölsku vinkonurnar Elenu og Lilu. Þættirnir eru byggðir á Napólí-sögum rithöfundarins Elenu Ferrante, sem farið hafa sigurför um heiminn. Vinkonurnar eru á fullorðinsaldri og lifa ólíku lífi en vináttan heldur enn. Aðalhlutverk: Alba Rohrwacher, Irene Maiorino og Fabrizio Gifuni. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Dönsk/íslensk kvikmynd frá 2018 um unglingsdrenginn Simon sem flytur frá Kaupmannahöfn til smábæjarins Vesterby. Þar vingast hann við Bjarke, erfingja fjölskyldufyrirtækis sem bærinn byggir lífsviðurværi sitt á. Þegar fyrirtækið þarf að loka verksmiðju sinni í bænum vegna fjársvika snúast bæjarbúar gegn fjölskyldunni. Eftir það sýnir Bjarke sífellt óhugnanlegri hegðun og Simon verður að gera upp við sig hvort hann á að snúa baki við vini sínum eða reyna að bjarga honum frá sjálfum sér. Íslenska leikkonan Laufey Elíasdóttir fer með eitt aðalhlutverkanna í myndinni. Meðal annarra leikenda eru Jonas Bjerril, Vilmer Trier Brøgger og Natalia Reyes. Leikstjóri: Martin Skovbjerg. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Bresk heimildarmynd frá 2018 um gerð plötunnar Back to Black með Amy Winehouse. Platan kom út árið 2006. Leikstjóri: Jeremy Marre.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.