RÚV Orð styður innflytjendur í íslenskunámi

RÚV Orð styður innflytjendur í íslenskunámi

RÚV ORÐ er nýr vefur sem notar sjónvarpsefni til aðstoða fólk við læra íslensku. Markmiðið með vefnum er bæta aðgengi innflytjenda íslensku samfélagi og lýðræðislegri umræðu og stuðla inngildingu fólks með fjölbreyttan bakgrunn í íslenskt samfélag. RÚV ORÐ er samstarfsverkefni RÚV, menningarog viðskiptaráðuneytis, félagsog vinnumarkaðsráðuneytis og menntaog barnamálaráðuneytis við Språkkraft, sem er óhagnaðardrifið sænskt félag sem hannar máltæknilausnir sem auðvelda tungumálanám. Á vefnum geta notendur valið sjónvarpsefni frá RÚV og tengt það við tíu tungumál: ensku, frönsku, þýsku, lettnesku, litáísku, pólsku, rúmensku, spænsku, taílensku og úkraínsku. Notendur velja færnistig í samræmi við íslenskukunnáttu sína, samkvæmt sex stigum evrópska tungumálarammans, og geta nálgast efni sem hentar þeimallt frá einföldum orðum og setningum upp í flóknara málfar. Íslenskur texti sem birtist á skjánum er litakóðaður í samræmi við færnistig notandans. Vefurinn er gagnvirkur og býður upp á möguleika á vista orð til læra síðar ásamt því leysa próf og verkefni. 

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.