
21 Mar RÚV English Radio tilnefnt til alþjóðlegra útvarpsverðlauna
Daglegi hlaðvarpsþátturinn RÚV English Radio undir stjórn Darren Adam var tilnefndur til alþjóðlegra verðlauna New York Festivals Radio Awards 2024 í flokki menningar- og myndlistarþátta.
Útvarpsverðlaunin New York Festivals Radio Awards eru hluti af hátíðum með aðsetur í New York borg. Veitt eru árleg list- og fjölmiðlaverðlaun „til að heiðra nýstárlegt hljóðefni af öllum tegundum og sniðum frá framleiðendum, stöðvum og netkerfum um allan heim,“ segir á vefsíðu verðlaunanna. Þetta er í fyrsta sinn sem þáttur gerður á Íslandi hlýtur tilnefningu til þessara verðlauna.
RÚV English Radio hófst í byrjun árs 2023 með það markmið að flytja enskumælandi íbúum Íslands eða aðdáendum landsins daglegan útvarpsþátt á ensku. Í safni hlaðvarpsins eru meira en 300 frumsamdir þættir þar sem fjallað er um allt milli himins og jarðar; fréttir, menningu, tónlist, tungumál, viðburði, fólk, staði og fleira. Meðal efnis má nefna sögu íslenskrar tónlistar með kynningu frá blaðakonunni Lydiu Athanasopoulou og vikuleg örnámskeið í íslensku máli með Atla Sigþórssyni, verkefnisstjóra aðgengis, þar sem fréttir eru lesnar á auðskildu máli og útskýrðar fyrir öllum sem vilja læra íslensku.
Sorry, the comment form is closed at this time.