Ráðstefna um fjölbreytileika, jafnræði og inngildingu

Ráðstefna um fjölbreytileika, jafnræði og inngildingu

Ráðstefna um fjölbreytileika, jafnræði og inngildingu var haldin á vegum RÚV og EBU, Samtaka evrópskra almannaþjónustumiðla (European Broadcasting Union (EBU)) í Útvarpshúsinu. Ráðstefnan beindi sjónum mikilvægi fjölbreytileika, jafnréttis og inngildingar í starfsemi almannaþjónustumiðla (Diversity, Equity & Inclusion). Meðal þátttakenda voru fulltrúar frá fjölmörgum evrópskum almannaþjónustumiðlum, og dagskráin fól í sér fjölbreytt erindi sem veittu dýrmæta innsýn. Hátt í 30 erlendir gestir komu á ráðstefnuna auk þátttakenda frá RÚV og EBU. Jean-Philip De Tender aðstoðarframkvæmdastjóri EBU sat ráðstefnuna og flutti opnunarávarp sem og Stefán Eiríksson útvarpsstjóri, sem jafnframt er formaður stýrihóps EBU um fjölbreytileika, jafnræði og inngildingu. Áhersla ráðstefnunnar á jafnréttismál í almannaþjónustu og staða þess var enn frekar undirstrikuð af Tinatin Berdzenishvili, útvarpsstjóra georgíska ríkissjónvarpsins og formanni jafnréttisnefndar EBU. Ráðstefnan lauk á jákvæðum nótum með umræðum um framtíðarsýn og verkefni sem EBU hyggst takast á við á sviði fjölbreytileika og jafnréttis. Í kjölfarið hafa myndast tækifæri til samstarfs og aðgerða sem munu móta framtíð fjölbreytileika og inngildingar í evrópskum almannaþjónustumiðlum. Hópurinn þáði einnig heimboð Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands og fékk þar tækifæri til ræða við hann um áherslur hans á sviði fjölbreytileika og inngildingar. 

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.