Frjálsar hendur, sem byrjuðu í Ríkisútvarpinu fyrir næstum aldarfjórðungi, hefja göngu sína á ný eftir áratugar hlé. Í þættinum spjallar umsjónarmaður um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur.