ARVE error: Mode: lightbox not available (ARVE Pro not active?), switching to normal mode
Falskur fugl fjallar um Arnald, 16 ára, myndarlegan og bráðgreindan dreng sem býr hjá vel stæðum foreldrum sínum. Líf hans breytist á svipstundu þegar hann kemur að eldri bróður sínum sem hefur fyrirfarið sér. Harmleikurinn tvístrar fjölskyldunni og Arnaldur leiðist út á ógæfubraut. Kvikmyndin er byggð á samnefndri skáldsögu Mikaels Torfasonar sem kom út 1997 og vakti mikla athygli og hlaut lof gagnrýnenda.
Handrit: Jón Atli Jónasson
Leikstjórn: Þór Ómar Jónsson
Sjá stiklu