
12 Mar MenntaRÚV opnað á ný
Á MenntaRÚV er efni sem ætlað er börnum og ungmennum frá 6 ára aldri. Efninu er skipt eftir skólastigum, allt frá yngsta stigi til framhaldsskóla. Einkum er um að ræða fræðsluefni af ýmsu tagi sem framleitt er af Ríkisútvarpinu og íslenskum kvikmyndaframleiðendum.
MenntaRÚV er ætlað að vera miðstöð fyrir fræðslu- og kennsluefni á íslensku eða með íslenskum texta, sérstaklega með þarfir kennara og nemenda í huga. MenntaRÚV er samstarfsverkefni RÚV og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS) og ritstjórn er skipuð fulltrúum beggja aðila. Markmiðið er að MenntaRÚV auki og auðveldi aðgengi kennara og nemenda að stuðningsefni við kennslu í öllum námsgreinum.
MenntaRÚV er enn í mótun og í samstarfi RÚV og MMS verður efnisframboð aukið jafnt og þétt. Efni á MenntaRÚV er opið öllum en stefnt er að því að setja einnig upp aðgangsstýrt svæði fyrir höfundavarið efni sem verður aðgengilegt skólum landsins.
Sorry, the comment form is closed at this time.