19 Mar Krakkar sögðu Krakkafréttir
Krakkafréttir fengu tíu unglinga í 8.-10. bekk til að flytja fréttir frá barnamenningarhátíð í Reykjavík sem haldin var 8.-13. apríl.
Vikuna á undan, 31. mars – 6. apríl, hélt KrakkaRÚV þriggja daga námskeið fyrir þessa ungu verðandi fréttamenn, þar sem farið var yfir grunnatriði í fréttamennsku allt frá viðtalstækni til tæknilegra atriða á borð við myndbandsupptökur og klippingu. Á sjálfri hátíðinni tók hópurinn upp fréttir og vann þær í sameiningu undir leiðsögn KrakkaRÚV. RÚV hafði svo beina útsendingu frá opnunarviðburði Barnamenningarhátíðar sem var í Eldborgarsal Hörpu 8. apríl.
Sorry, the comment form is closed at this time.