08 Dec Jólakveðjur unga fólksins í fyrsta sinn á Rás 2
Bryddað var upp á þeirri nýjung að bjóða ungu fólki að senda jólakveðjur sem voru lesnar á Rás 2. Hingað til hafa jólakveðjur aðeins verið lesnar á Rás 1. Bræðurnir Matthías Davíð og Hálfdán Helgi Matthíassynir í VÆB lásu kveðjurnar eftir kvöldfréttir klukkan 18 á Þorláksmessu. „Það mega bara allir senda kveðju til hvers sem er og við verðum bara hérna tilbúnir til starfa að lesa þær,“ segir Hálfdán.
Sorry, the comment form is closed at this time.