Hraunkælingarstjóri orð ársins í menningarviðurkenningum RÚV

Hraunkælingarstjóri orð ársins í menningarviðurkenningum RÚV

Menningarviðurkenningar RÚV fyrir árið 2024 voru afhentar í byrjun árs. Áslaug Jónsdóttir hlaut viðurkenningu Rithöfundasjóðs RÚV og Birnir Jón Sigurðsson hlaut hvatningarverðlaun sjóðsins. Mugison hlaut Krókinn fyrir framúrskarandi lifandi flutning og “hraunkælingarstjóri” var orð ársins. Auk þess var tilkynnt um styrki úr Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins og STEFs á árinu. 

„Viðurkenninguna hlýtur Áslaug fyrir fjölbreytt verk sín og framlag til íslenskra bókmennta, barnamenningar og myndlistar. Áslaug er fjölhæfur listamaður en auk þess að skrifa bækur sem eiga sér aðdáendur á öllum aldri, hérlendis og víða um veröld, er hún mikilvirkur myndskreytir og hönnuður”, segir meðal annars í rökstuðningi dómnefndar um verk Áslaugar. Um Birni Jón Sigurðsson segir meðal annars: „Viðurkenninguna hlýtur Birnir fyrir að vinna jöfnum höndum með texta, leikhús og kvikmyndir sem bæði rit- og sviðshöfundur, leikstjóri og flytjandi og hefur komið að skipulagi og framkvæmd margskonar lista- og menningarviðburða á undanförnum árum,…”. Örn Elías Guðmundsson eða Mugison hlaut Krókinn 2024 – viðurkenningu Rásar 2, fyrir óvenjulegt tónleikaferðalag þar sem Mugison spilaði í 100 kirkjum víðsvegar um landið.  

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.