Freyr og Eva hlutu blaðamannaverðlaunin

Freyr og Eva hlutu blaðamannaverðlaunin

Freyr Gígja Gunnarsson, fréttamaður á RÚV, hlaut blaðamannaverðlaun ársins sem voru þann 12. mars. Freyr var verðlaunaður fyrir fréttaskýringar sínar í Speglinum, en í umsögn dómnefndar sagði að Freyr hefði sýnt einstaka þrautseigju í að krefja stjórnvöld um svör í stórum málum. Það hefði kjarnast í umfjöllun hans um samskipti ráðamanna í aðdraganda brottflutnings Yazan Tamimi.

Eva Björk Benediktsdóttir, fréttamaður á RÚV, var verðlaunuð fyrir viðtal árins, fyrir viðtal sem hún tók við Hafdísi Báru Óskarsdóttur sem varð fyrir lífshættulegri árás af hendi barnsföður síns.

No Comments

Sorry, the comment form is closed at this time.