23 Apr Eva Georgs Ásudóttir ráðin í starf dagskrárstjóra sjónvarps
Eva Georgs Ásudóttir var ráðin í starf dagskrárstjóra sjónvarps hjá Ríkisútvarpinu. Starfið var auglýst í mars og bárust alls 28 umsóknir en fimm drógu umsókn sína til baka.
Eva hefur meira en tuttugu ára reynslu af störfum við fjölmiðla, þar af um fimmtán ár í stjórnunarhlutverkum. Áður en hún kom til starfs hjá RÚV var hún sjónvarpsstjóri hjá Sýn þar sem hún leiddi 75 manna teymi og bar ábyrgð á rekstri, stefnumótun og dagskrá Stöðvar 2, Stöðvar 2+ og Stöðvar 2 Sport. Áður var hún meðal annars framleiðslustjóri innlendrar þáttagerðar hjá Stöð 2, framleiðslustjóri fréttastofu og veitti allri sjónvarpsframleiðslu 365 miðla forstöðu auk þess að vera yfirframleiðandi stórra verkefna á borð við Idol. Eva er með menntun á sviði stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands ásamt meistaragráðu í verkefnastjórnun (MPM) frá Háskólanum í Reykjavík.
Sorry, the comment form is closed at this time.