20 Feb Elín Hall tók þátt í stærsta útvarpsþætti Evrópu
Rás 2 tók þátt í stærsta útvarpsþætti Evrópu “Europe’s Biggest Gig” sem BBC Radio 1 stóð að í samstarfi við EBU – Samband evrópskra útvarpsstöðva.
Þátturinn var sendur út á fimm ríkisstöðvum í Evrópu og náði til margra milljóna hlustenda. Auk BBC Radio 1 í Bretlandi tóku RTE 2FM á Írlandi, VRT Studio Brussel í Belgíu, WDR 1Live í Þýskalandi og Rás 2 þátt í verkefninu.
Markmið þáttarins var að kynna það sem er í gangi á tónlistarsviðinu í hverju landi fyrir sig og hver stöð fékk 30 mínútur til þess. „Rás 2 hefur lengi verið í fararbroddi þegar kemur að því að kynna íslenska tónlist hér heima en hlutverk Rásar 2 í alþjóðasamstarfi á vettvangi EBU er einnig mikilvægt en þar gefast okkur tækifæri á að kynna íslenska tónlist fyrir evrópskum hlustendum, m.a. á hverju ári á Eurosonic tónlistarhátíðinni í Hollandi. Þessi þáttur er liður í því að gera enn meira og betur í þeim málum, að breiða út boðskapinn um íslenska tónlist sem víðast,” sagði Sigurður Þorri Gunnarsson tónlistarstjóri Rásar 2 af þessu tilefni.
Sorry, the comment form is closed at this time.