Tímalína 2021

Útsýnispallur á Stórahnjúki á toppi Úlfarsfells í Mosfellsbæ var opnaður með formlegum hætti þann 12. ágúst. Neyðarlínan, RÚV og Vodafone stóðu saman að byggingu útsýnispallsins sem er við hlið fjarskiptamasturs sem þau reistu á fjallinu. https://www.ruv.is/frett/2021/08/12/utsynispallur-tekinn-i-notkun-a-ulfarsfelli...

Stærsta verkefni íþróttadeildar á árinu voru Ólympíuleikar og Ólympíumót fatlaðri sem haldnir voru í Tókýó. Ísland átti fjóra keppendur á Ólympíuleikum og fimm á Ólympíumóti fatlaðra. RÚV fylgdi Íslendingum um hvert fótmál og gerði því skil í daglegum þáttum í Ólympíukvöldi. Þá gerði RÚV sextán...

Sumartónleikar RÚV og Rásar 2, Tónaflóð um landið var í beinni útsendingu frá öllum landshlutum á föstudögum í júlí. Sent var út beint frá Vestmannaeyjum, Bíldudal, Akureyri og Höfn og var áhersla lögð á þekkta íslenska tónlist á tónleikunum. Á hverjum stað héldu þjóðþekktir gestasöngvarar...

Nýr samningur RÚV við Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra tryggir að aðalfréttatíminn kl. 19 verður framvegis túlkaður á táknmál. Samhliða verður einnig byrjað að senda Krakkafréttir út með táknmálstúlkun. https://www.ruv.is/i-umraedunni/taknmalstulkun-med-kvoldfrettum-fra-og-med-1-september-2021  ...

Ísland með Daða og Gagnamagninu náði sínum þriðja besta árangri í Eurovision keppninni frá upphafi, 4. sætinu. Úrslitin fóru fram í Ahoy höllinni í Rotterdam þann 23. maí. Síðasta sviðsæfing íslenska hópsins var sýnd í beinu útsendingunni vegna Covid-19 smita í íslenska hópnum. „Við sátum...

Sjónvarpsmyndin Sóttkví var frumsýnd á páskadag á RÚV. Reynir Lyngdal leikstýrir eftir handriti Birnu Önnu Björnsdóttur og Auðar Jónsdóttur. Elma Lísa Gunnarsdóttir, Birgitta Birgisdóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir og Hilmar Guðjónsson fara með helstu hlutverk. Sóttkví fjallar um þrjár vinkonur sem þurfa allar að fara í sóttkví...