Author: Kolbrún Vaka Helgadóttir

Daglegi hlaðvarpsþátturinn RÚV English Radio undir stjórn Darren Adam var tilnefndur til alþjóðlegra verðlauna New York Festivals Radio Awards 2024 í flokki menningar- og myndlistarþátta.    Útvarpsverðlaunin New York Festivals Radio Awards eru hluti af hátíðum með aðsetur í New York borg. Veitt eru árleg list- og...

Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna var rætt um konur í kvikmyndagerð á málþingi í útvarpshúsinu. Guðrún Elsa Bragadóttir, lektor við kvikmyndalistadeild LHÍ, flutti erindi um hvernig konur hafa verið hlutgerðar í kvikmyndum í gegnum tíðina út frá karllægu sjónarhorni. Þórey Þórsdóttir hjá dagskrárdeild sjónvarps...

Tónlistarkonan Una Torfa hlaut Krókinn 2023, viðurkenningu Rásar 2 fyrir framúrskarandi tónlistarflutning á árinu. Hún kom af miklum krafti inn í íslenskt tónlistarlíf árið 2022 með þröngskífunni Flækt og týnd og einmanna. Síðan þá hefur hún orðið ein af okkar allra vinsælustu tónlistarkonum og sent...

Menningarviðurkenningar RÚV fyrir árið 2023 voru afhentar í byrjun árs. Gerður Kristný hlaut viðurkenningu Rithöfundasjóðs Ríkisútvarpsins fyrir ritstörf. Í rökstuðningi úthlutunarnefndar segir að Gerður hefur verið mikilvirk á ritvellinum undanfarna áratugi. Hún er líka fjölhæf og fæst við ólíkar gerðir bókmennta; skrifar bæði fyrir börn...