22 Apr Heimaleikfimi í sjónvarpinu
Í samkomubanninu í apríl var ákveðið að setja á dagskrá Heimaleikfimi í sjónvarpinu. Íris Rut Garðarsdóttir sjúkraþjálfari hefur umsjón með leikfiminni. ...
Í samkomubanninu í apríl var ákveðið að setja á dagskrá Heimaleikfimi í sjónvarpinu. Íris Rut Garðarsdóttir sjúkraþjálfari hefur umsjón með leikfiminni. ...
Anna Þorvaldsdóttir, tónskáld, var ráðinn listrænn stjórnandi Tónlistarhátíðar Rásar 1 árið 2020. Anna er eitt af forvitnilegustu tónskáldum samtímans og hefur hlotið fjölda viðurkenninga á undanförnum árum, þar á meðal Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs árið 2012. Fyrri listrænir stjórnendur hátíðarinnar eru Berglind María Tómasdóttir, Halla Oddný Magnúsdóttir og Daníel...
Að vanda var boðið upp á fjölbreytta og vandaða dagskrá á öllum miðlum RÚV um páskana. Nýtt íslenskt efni og skemmtun fyrir alla fjölskylduna var þar í öndvegi. Við frumsýndum nýja sjónvarpsmynd, Sveinsstykki. Einnig sjónvarpsútgáfu í tveimur hlutum af spennumyndinni vinsælu Ég man þig, sem...
Í ljósi þess að skóla- og frístundastarf var með skertu móti vegna kórónaveirufaraldurins í mars ákvað RÚV að bjóða upp á tvo nýja daglega sjónvarpsþætti sem báðir voru ætlaðir ungu fólki. Annars vegar var það þátturinn Heimavist og hins vegar þátturinn Núllstilling. Heimavist er þáttur...
MenntaRÚV hefur verið í undibúningi um nokkurt skeið en ákveðið var að hraða þeirri vinnu í ljósi kórónaveirufaraldursins. Hugmyndin með MenntaRÚV er að bjóða með aðgengilegum hætti upp á dagskrárefni RÚV sem nýta má við fræðslu, upplýsingaöflun, nám og kennslu. Hryggjarstykkið í MenntaRÚV er nýr...
RÚV hefur mikilvægu og skýru hlutverki að gegna í almannavarnaástandi eins og hefur ríkt á tímum COVID-19 faraldursins. Það á við um miðlun frétta, upplýsinga og ekki síður afþreyingarefnis af ýmsu tagi. Öllum þeim fjölbreyttu verkefnum sem þessu fylgja hefur starfsfólk RÚV sinnt af mikilli...
Gripið var til viðamikilla aðgerða hjá RÚV þegar samkomubann var sett á í fyrsta sinn á Íslandi þann 16. mars 2020. Ríkisútvarpið hefur mikilvægu hlutverki að gegna í slíku almannavarnaástandi og vinnur í samræmi við gildandi áætlun um órofinn rekstur. Allt starfsfólk sem ekki þurfti...
Morgunþættir Rásar 1 og 2 sameinuðu krafta sína tímabundið í einum útvarpsþætti sem sendur var út á samtengdum rásum útvarps, í sjónvarpi og á rúv.is. Þetta var gert til að efla þjónustu við landsmenn og tryggja markvissa miðlun upplýsinga í upphafi kórónuveirufaraldursins á Íslandi....
Arnar Páll Hauksson, fréttamaður í Speglinum, hlaut í dag blaðamannaverðlaun ársins fyrir umfjöllun um kjaramál. Þá hlutu fréttamenn RÚV í Kveik og blaðamaður Stundarinnar verðlaun fyrir umfjöllun um Samherjamálið. https://www.ruv.is/frett/kveikur-og-spegillinn-medal-verdlaunahafa...
RÚV hlaut (sem framleiðandi eða meðframleiðandi) 44 tilnefningar alls fyrir sjónvarpsefni árið 2019. Hvítur, hvítur dagur eftir Hlyn Pálmason hlaut flestar tilnefningar til Edduverðlauna eða 12 talsins. Agnes Joy eftir Silju Hauksdóttur og Pabbahelgar eftir Nönnu Kristínu Magnúsdóttir fengu tíu tilnefningar hvor....