Author: Kolbrún Vaka Helgadóttir

Á KrakkaRÚV var sýnd ný þáttaröð undir heitinu Ævintýrajóga sem ætlað var að hvetja börn til hreyfingar, djúpslökunar og sköpunar í gegnum leik og ævintýri. Umsjónarmaður var Þóra Rós Guðbjartsdóttir sem byrjaði að þróa hugmyndina í covid-faraldrinum þegar hún leitaði að íslensku jógaefni fyrir sín eigin börn og komst að því að úrvalið var lítið. Þá kviknaði hugmyndin að Ævintýrajóga. „Mig langaði að gera jóga spennandi fyrir börn og búa til heim þar sem þau geta leikið sér, róað hugann og hreyft sig á sama tíma. Jóga hjálpar okkur að taka hlé frá daglegu amstri og börn þurfa það alveg eins og við!“ segir Þóra Rós. Í hverjum þætti var nýtt ævintýri þar sem börnin tóku þátt í æfingum sem örvuðu bæði ímyndunarafl og vellíðan.  ...

Rás 2 tók þátt í stærsta útvarpsþætti Evrópu "Europe's Biggest Gig” sem BBC Radio 1 stóð að í samstarfi við EBU – Samband evrópskra útvarpsstöðva.  Þátturinn var sendur út á fimm ríkisstöðvum í Evrópu og náði til margra milljóna hlustenda. Auk BBC Radio 1 í Bretlandi tóku RTE 2FM á Írlandi, VRT Studio Brussel í Belgíu, WDR 1Live í Þýskalandi og Rás 2 þátt í verkefninu.  Markmið þáttarins var að kynna það sem er í gangi á tónlistarsviðinu í hverju landi fyrir sig og hver stöð fékk 30 mínútur til þess. „Rás 2 hefur lengi verið í fararbroddi þegar kemur...

Menningarviðurkenningar RÚV fyrir árið 2024 voru afhentar í byrjun árs. Áslaug Jónsdóttir hlaut viðurkenningu Rithöfundasjóðs RÚV og Birnir Jón Sigurðsson hlaut hvatningarverðlaun sjóðsins. Mugison hlaut Krókinn fyrir framúrskarandi lifandi flutning og “hraunkælingarstjóri” var orð ársins. Auk þess var tilkynnt um styrki úr Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins og STEFs á árinu.  „Viðurkenninguna hlýtur Áslaug fyrir fjölbreytt verk sín...