21 Feb Ævintýrajóga
Á KrakkaRÚV var sýnd ný þáttaröð undir heitinu Ævintýrajóga sem ætlað var að hvetja börn til hreyfingar, djúpslökunar og sköpunar í gegnum leik og ævintýri. Umsjónarmaður var Þóra Rós Guðbjartsdóttir sem byrjaði að þróa hugmyndina í covid-faraldrinum þegar hún leitaði að íslensku jógaefni fyrir sín eigin börn og komst að því að úrvalið var lítið. Þá kviknaði hugmyndin að Ævintýrajóga. „Mig langaði að gera jóga spennandi fyrir börn og búa til heim þar sem þau geta leikið sér, róað hugann og hreyft sig á sama tíma. Jóga hjálpar okkur að taka hlé frá daglegu amstri og börn þurfa það alveg eins og við!“ segir Þóra Rós. Í hverjum þætti var nýtt ævintýri þar sem börnin tóku þátt í æfingum sem örvuðu bæði ímyndunarafl og vellíðan.
Sorry, the comment form is closed at this time.