Samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu ársins 2024 námu rekstrartekjur RÚV ohf. 9.149 milljónum króna (2023: 8.726 milljónir króna). Tekjurnar jukust um 423 milljónir króna milli ára eða 4,8% en að teknu tilliti til verðlagsþróunar þá lækkuðu tekjur um 1% að raunvirði milli ára. Rekstrargjöld námu 8.972 milljónum króna (2023: 8.242 milljónir króna) og jukust um 730 milljónir króna milli ára eða 8,9%. Laun- og launatengd gjöld námu 3.881 milljón króna (2023: 3.686 milljónir króna) og jukust um 195 milljónir króna milli ára eða 5,3%. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar lækkuðu launaútgjöldin milli ára. Meðalfjöldi stöðugilda á árinu var 275 (2023: 273) en frá miðju ári hefur stöðugildum verið fækkað sem hluta af hagræðingaraðgerðum félagsins. Annar rekstrarkostnaður, að frátöldum afskriftum, nam 4.582 milljónum króna (2023: 4.079 milljónir króna) og jókst um 503 milljónir króna milli ára eða 12,3% en ríflega 6% að teknu tilliti til verðlagsþróunar. Aukning milli ára skýrist fyrst og fremst af gjaldfærslum vegna stórra íþróttaviðburða á árinu og kostnaðar í tengslum við eldsumbrotin á Reykjanesskaga og tvennra kosninga.
Markmið stjórnar hefur verið að rekstur RÚV sé ávallt yfirvegaður og hallalaus. Mikilvægt er að tryggja að reksturinn sé sjálfbær til langs tíma litið. Í því felst að skuldsetning félagsins sé viðráðanleg og lausafjárstaðan með þeim hætti að félagið geti mætti óvæntum áföllum í rekstri. Skuldir RÚV hafa um árabil verið háar, m.a. vegna uppgjörs á eldri lífeyrisskuldbindingum. Þrátt fyrir margvíslegar aðgerðir á undanförnum árum sem hafa leitt til lækkunar skulda telur stjórn RÚV að félagið sé enn of skuldsett og mun halda áfram að leita varanlegra lausna á skuldsetningu þess.
Á árinu 2024 náðist ekki markmið um hallalausan rekstur og nam tap á rekstri félagsins 188 milljónum króna. Taprekstur félagsins má að hluta rekja til þess að tekjur félagsins lækkuðu að raunvirði á milli ára en einnig til hárra gjaldfærslna vegna íþróttaviðburða og kostnaðar vegna kosninga og eldsumbrota. Á árinu var gripið til ýmissa ráðstafana til að bæta afkomu og sjóðstöðu innan ársins. Aðgerðirnar skiluðu meðal annars því að skuldir við lánastofnanir, að teknu tilliti til handbærs fjár, voru komnar í jafnvægi um áramót og nam viðsnúningurinn innan ársins 141 milljón króna. Þá var aðgerðunum enn fremur ætlað að stuðla að hallalausum rekstri á árinu 2025 og að sjóðstaða félagsins verði jákvæð í árslok 2025.
Tekjur RÚV Sölu á rekstrarárinu 2024 af sölu auglýsinga og kostana námu 2.560 milljónum króna.
Eftirtaldir dagskrárliðir voru kostaðir á árinu:
Eftirtaldir dagskrárliðir voru rofnir með auglýsingahléum á árinu:
RÚV sala er dótturfélag RÚV sem heldur utan um sölu auglýsinga og kostana.